Thai Viet

    Thai Viet !
    Thai Viet er eitt rótgrónasta thailenska / austurlenska veitingahús landsins en staðurinn var stofnaður fyrir 8 árum síðan og hefur verið á sama stað í öll þessi ár eða á Smiðjuvegi 4, Kópavogi.

    Frá fyrsta degi hefur metnaður eigenda og starfsmanna Thai Style legið í afbragðs thailenskum mat á frábæru verði.

    Hjá Thai Viet getur þú komið og borðað á staðnum í huggulegum og látlausum húsakynnum eða tekið matinn með.

    Veitingasalurinn tekur um 42 í sæti og er Thai Viet með léttvínsleyfi. Hjá Thai Style starfa fagmenn á öllum sviðum sem veita persónulega og góða þjónustu.

    Thai Viet býður einnig upp á veitingaþjónustu og „mat í áskrift“, sjá nánar hér á síðunni undir „Veitingaþjónusta“.

    Opnunartími.

    Núna er opið hjá okkur frá 11:00 til 21:00 Mán til Lau.
    Og 12:00 til 20:00 á Sunnudögum.

    Veitingaþjónusta Thai Viet er opin eftir samkomulagi, sjá nánar hér á síðunni undir „Veitingaþjónusta“ Thai SViet er á Smiðjuvegi 4 í Kópavogi (Fyrir neðan Bónus). sjá hér

    Og nú erum við nýbúin að opna á Laugarvegi 178 sjá hér

    ásamt Reykjavíkurvegi 68, 220 Hafnafirði. sjá hér

    Eitthvað fyrir alla – frábært verð.

    Hjá Thai Viet getur þú tekið bragðlaukana í ferðalag um öll helstu héruð Thailands en að auki bjóðum við upp á vinsæla austurlenska rétti.

    Aðeins eru notuð gæða hráefni á öllum stigum matargerðarinnar enda eru gæði og ferskleiki í hávegum höfð í okkar eldhúsi.

    Þú finnur yfir 46 rétti ásamt „réttum dagsins“ og sérstökum barnamatseðli hjá okkur. Allir eiga því að finna eitthvað við sitt hæfi. Verðið er frábært eða frá 1090-1600kr –

    Við notum ekki MSG eða transfitu (harða fitu) í okkar mat.

    Thai Style – besta verðið án þess að gera málamiðlanir í gæðum.